• No results found

Framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar : Norðurlönd – saman erum við öflugri

N/A
N/A
Protected

Academic year: 2021

Share "Framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar : Norðurlönd – saman erum við öflugri"

Copied!
4
0
0

Loading.... (view fulltext now)

Full text

(1)

Við, samstarfsráðherrar Norðurlandanna, erum sannfærð um mikilvægi þess að norrænt samstarf verði áfram öflugt og markvisst á tímum þegar viðfangsefni hnattvæðingar, auðlindanýtingar og efnahags- kreppu krefjast úrlausnar norrænu velferðar-samfélaganna jafnframt því að mikilvægi svæða-samstarfs fer vaxandi.

Á Norðurlöndum er löng hefð fyrir traustu samstarfi sem byggist á sameiginlegri sögu, menningu og landfræðilegri legu landanna. Samfélög okkar eru einnig byggð á grunni sömu gilda; lýðræðis, mannréttinda og sjálfbærni. Við höfum nýtt þessa sérstöðu í norrænu samstarfi til að ná fram samlegðaráhrifum og skiptast á reynslu í því skyni að finna haldgóðar lausnir á fjölda sviða sem gagnast hinum almenna borgara á Norðurlöndum. Áframhaldandi aðgerðir í þá veru að greiða leiðir borgara, vöru og þjónustu innan Norðurlanda hafa átt þátt í að efla samkeppnisstöðu landanna. Samstarfið hefur einnig orðið til þess að auka áhrif Norðurlanda á alþjóðavettvangi. Saman erum við öflugri.

Framtíðarsýn Norrænu

ráðherranefndarinnar

Norðurlönd – saman erum við öflugri

(2)

Norrænt samstarf á að vera í stöðugri

endur-nýjun en þannig má tryggja að það verði áfram öflugt verkfæri norrænu ríkisstjórnanna við lausn á nýjum pólitískum viðfangsefnum.

Samstarfið á að vera þróttmikið svo alltaf sé

hægt að sníða það að þörfum landanna og málum sem eru ofarlega á dagskrá norrænu ríkisstjórnanna.

Samstarfið á að koma almenningi við en það

er gert með því að leggja áherslu á mál sem hafa bein áhrif á daglegt líf borgaranna. • Á sama tíma ber að leggja áherslu á aðgerðir

þar sem árangurinn verður sýnilegur og mælanlegur. Eðli samstarfsins á að vera ótvírætt gagnvart umheiminum þannig að norræn sérstaða nýtist til hins ýtrasta.

Norrænt samstarf á að hafa pólitískt vægi

fyrir hinn almenna borgara, þingmenn og ríkisstjórnir hvort sem um er að ræða norræn eða alþjóðleg málefni. Samstarfið á að fela í sér norrænt notagildi, virðisauka fyrir alla og skila pólitískum árangri.

››

››

Markmið

(3)

Stoðir

Norðurlönd án landamæra

Eitt helsta viðfangsefni í norrænu samstarfi er að skapa ákjósanlegar aðstæður fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja fara frjálst milli Norðurlandanna. Þetta starf viljum við efla, þar á meðal tryggja að ný löggjöf í löndunum og innleiðing ESB-löggjafar skapi ekki nýjar stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum.

Nýskapandi Norðurlönd

Norðurlönd eru nýskapandi svæði þar sem lögð er áhersla á velferð, menntun, sköpunarkraft, frumkvöðlastarf, sjálfbærni og rannsóknir. Við munum áfram beita okkur fyrir nánu samstarfi um lausn á verkefnum sem skipta hinn almenna borgara máli á sviðum þar sem vænta má að meiri gæði og skilvirkni náist í sameiningu en ella.

Sýnileg Norðurlönd

Norðurlönd vekja athygli um allan heim og norræna vörumerkið er vel þekkt. Vaxandi áhugi er á reynslu Norðurlandaþjóða af því að byggja upp og þróa sam-félög sem einkennast af mikilli framleiðni, félagslegu öryggi, jafnrétti og góðu umhverfi. Við munum beita okkur fyrir því að löndin standi saman að því að vekja athygli umheimsins á Norðurlöndum sem einni heild. Á sama tíma veit almenningur á Norðurlöndum lítið um norrænt samstarf og viljum við bæta úr því með öflugu kynningarátaki.

Opin Norðurlönd

Norrænu löndin eru lítil hvert um sig en samanlagt erum við 25 milljónir og hagkerfi okkar er meðal tíu stærstu í heiminum. Norrænu löndin taka þátt í alþjóðasamstarfi á ýmsum vígstöðvum. Við viljum halda áfram að stilla saman strengi Norðurlanda í alþjóðamálum og gera enn betur, einkum þar sem löndin eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta. Við viljum tryggja að samstarf Norðurlandanna um alþjóðleg málefni komi til viðbótar samstarfi sem fram fer hjá öðrum stofnunum.

(4)

US 2014:410

Ved Stranden 18 DK-1061 København K www.norden.org

››

Þróun samstarfs á Norðurlöndum

Við, samstarfsráðherrar Norðurlandanna, höfum umsjón með ríkisstjórnasamstarfi á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir hönd forsætisráðherranna. Með yfirlýsingunni um framtíðarsýn viljum við marka heildarstefnu í norrænu samstarfi. Við viljum efla samræm-ingarhlutverk okkar í norrænu samstarfi, meðal annars með því að fylgja eftir framtíðarsýn, nútímavæðingu, samskiptum og kynningu á norrænu samstarfi. Við hyggjumst einnig hafa umsjón með samræmingu á fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. Framtíðarsýnin er undirstaða samstarfs okkar við Norðurlandaráð og við það norræna samstarf sem fram fer innan hins borgaralega samfélags.

Skipulagið verður að vera nútímalegt og markvisst til þess að pólitíska samstarfið verði þróttmikið. Við bindum vonir við að nútíma-væðingarverkefni framkvæmdastjórans muni leiða til þess að skipulagið verði í senn nútíma-legra, einfaldara og skilvirkara. Formennsku-landið, framkvæmdastjórinn og skrifstofa Nor-rænu ráðherranefndarinnar skulu leggja til nýjar aðgerðir og fleyta samstarfinu fram á við þannig að samstarfið hafi pólitískt vægi. Samtímis ber ætíð að huga að því að pólitíkin sé þróttmikil.

References

Related documents

Forum Scientium skall tackas för alla de trevliga stunderna, inspirerande diskussioner och föreläsningar jag därigenom fått delta i. Speciellt tack går till Stefan,

With respect to goodput and message delay simulation, we will simulate one way communication in which a transmitter generates 1000 bytes payload with bit rate from 1 Kbit/s to

The former compares the performance of an Auxiliary particle filter running three different Coordinated Turn models with that of an IMM running three EKF filters for the same

A multiple linear regression model is developed and used to provide predictions of fuel consumption of the vehicle throughout the WLTC driving cycle.. Results from the simulation

Moreover, the work should focus on the provided Distributed User Interface framework, Marve, and further analyze and evaluate it through the imple- mentation of a larger

Four-month metacarpal bone mineral density loss predicts radiological joint damage progression after 1 year in patients with early rheumatoid arthritis: exploratory analyses from

Prior to the execution of the nanoscratch tests, we performed indentations with the conical indenter (apex radius ca. In Figure 4 it can be seen that the elastic recoveries for

Constraint City: The Pain of Everyday Life (2007), Marcelle proposes that similar to the structural and political violence network users find in encrypted networks, the pleasure